|
Ragnheiður Halldórsdóttir
|
17.09.2008 14:34:34 / ragga
»
15.07.2008 19:19:32 / ragga
Jæja gott fólk.. held það sé kominn tími á að rita e-ð af viti hérna :]
Allavegana hef ég frá nógu að segja því síðustu vikur hafa verið afskaplega skemmtilega viðburðaríkar.
Besta skemmtun ársins og lífs míns held ég hingað til átti sér stað á landsmóti hestamanna þarsíðustu helgi, fjúfffff ég svitna á efri vörinni við tilhugsunina!! Allavegana....
...ég, Anna, Biggi, Ingvi og Tolli hættum okkur inn í Landroverinn "góða" með Brautarholtsbræðrum miðvikudagskvöldið 2. júlí 2008, sennilega hefðum við aldrei átt að láta fá okkur út í þá vitLEYSU sem það var að fara inn í þennan bíl... Því ekki hefði þurft mikið til að við myndum liggja á kistubotni núna frekar en eins og ég núna, að chilla hérna í tölvunni!
 Gullvagninn
En þar sem við tókum inn nóg af kæruleysisdrykk á leiðinni og treystum fullkomnlega á Brautarholtsbræður og hina tvo driver-ina var ferðin á mótið MJÖG skemmtileg þó hún tæki 7 tíma ;] Sungum og trölluðum alla leiðina að ógleymdum svona 375 pissu- og myndatökustoppum. Stoppuðum svo auðvitað líka einu sinni til að leyfa Óla að synda yfir Hvítá, sem hann gerði auðvitað með miklum glæsibrag ;]
 Flautan góða sem við hikuðum ekki við að nota ef það voru rollur á veginum 
 Auðvitað vorum við Anna alltaf með teipið á lofti og teipuðum útvarpið vel upp í loftið + hurðina Önnu svo hún myndi nú örugglega ekki opnast eða detta af...... ;]
 Pissustopp
 Óli fékk áfengiseitrun svo við smurðum hann vel og vandlega með rakakremi

 Haha besta mynd í heimi :'D
 Geggjuð mynd sem Ingvi tók af okkur Önnu einhversstaðar á Kili :]
 HAHA Óli ný búinn að STINGA sér til sunds 
 Haha víí Óli ofurhetja, það fengu sko allir að heyra þessa sögu ;]
 Driver-ar og Anna gerpi
Síðan komum við loksins á svæðið og tjölduðum öllu sem hægt var að tjalda, með hjálp reyndar því það var ofar skilningi okkar Önnu að púsla þessu saman sjálfar 
Á fimmtudaginn vöknuðum við fyrst við það að Björn Jóhann og Óskar Páll voru duglegir að vekja alla, pota í punginn á strákunum með regnhlíf eða einhverjum fjanda sem þeir fundu og fleira.. Allavegana voru allir frekar geðvondir þegar þeir voru búnir að koma í heimsókn ;] En þar sem Óskar dó nú fljótlega inni í þeirra fallega hjólhýsi nýttum við okkur tækifærið og stálum bílnum hans og pikkfestum tjaldið okkar við hann, með baggaböndunum góðu sem stelpan hafði tekið með sér að heiman Tjaldið okkar stóð því eiginlega tjalda best það sem eftir var mótsins
Svo brölluðum við ýmislegt þennan dag og Anna gerði fínt í hárið á öllum stelpunum, nema Bigga.... sem vildi gera sjálfur ::
 HAHAHAHAH... æjæjæj
Fimmtudagskvöldið var svo að mínu mati skemmtilegasta kvöldið þarna, þá var mótssetningin og við sátum voða hressar og sungum hærra en allir hinir í brekkunni, ég, Anna og Edda Hlíf.... Ýmislegt fyndið kom einnig fram þetta kvöld sem ekki er í frásögur færandi ;]
 Frænkz
 Haha.. man ekki alveg afhverju við vorum alltaf með þessa pöttinger hatta
 Óli Hafsteins og Edda og Þórdís þarna til hliðar með geggjaðan svip.. hahaha
Síðan var þarna um kvöldið svaka kvöldvaka þar sem leiðinleg kona söng og söng e-ð leiðinlegt en samt sem áður var það mjög skemmtilegt í góðra vina hópi ;]
 Hahahah váá þetta var svo gaman!!
Morguninn eftir vöknuðum ég, Anna og Tolli svo eldsnemma til að missa nú örugglega ekki af neinu fyndu og fórum og vöktum alla og drógum liðið í sund ;] Óli og Þorri voru nú samt ekki alveg á því að drífa sig á fætur svo gerðum bara e-ð fallegt við þá í staðinn....
 Hahahaha... fórum svo klukkutíma fresti og ýttum á play á útvarpinu þegar diskurinn var búinn ;]
 Þessi kauði var líka hress
Á föstudeginum fórum við svo auðvitað aftur í sund og margar skrautlegar rennibrautarferðir voru farnar, fólk slasaðist og Stefán þrusaði á einhvern krakka og fleira skondið.. já og ekki má gleymda FALLEGU SMALL sundskýlunni sem Tolli fékk og var eftir það kallaður Tolli small ;]
Um kvöldið var svo snilldarball með Helga Björns. mjöög skemmtó =D
Á laugardeginum fórum við í sund á Hvolsvelli og borðuðum einhversstaðar þar og tregasti afgreiðslumaður á jarðríki afgreiddi okkur, sem okkur fannst auðvitað frekar fyndið og töluðum hátt, hægt og SKÝRT við hann..
Um kvöldið kom svo Siggi og Anna varð voðavoðavoooooða glöð og ég átti afmæli og það var ball með Hjálmum og ég veit ekki hvað og hvað... Allavegana voru hjörtu okkar allra full af gleði og ungri ævintýraþrá ÓJÁ!!
Sunnudagurinn sjálfur var svo ekki alveg eins æðislegur því það þýddi tiltekt og niðurpökkun. Plús langa bið eftir Stefáni, komumst svo loksins af stað á þessu stórhættulega farartæki, eða hvað þetta er! Allavegana var heimferðin vægast sagt ömurleg og allt fór í bílnum sem farið gat, kúplingin, bremsurnar og fleira... En hvað, við vorum ekki nema tjaa 10 tíma á leiðinni... Það voru þó fyndin komment inná milli eins og alltaf í svona ferðum með 3 sauðdrukkna pilta aftur sem vissu ALLT betur en við hin sem vorum edrú 
Við komumst allavegana öll heil heim eftir ótrúlega skemmtilega daga á Hellu =D
Annars var þetta nú það helsta sem ég ætlaði að rita hérna enda orðið alveg slatta langt.. og nú ert tölvan alveg að verða batteríislaus svo að...
HEJDO venner og ég vil skrilljón komment =D
-Ragga Gröndal
»
02.07.2008 15:35:56 / ragga
MÖRKUN OG RÚNINGUR Í BRIMNESI Í VOR   Skrifa í fjárbókina  Steinunn og pabbi með ferhyrntu lömbin MÍN  Við saman...  Rock on  ég og Svarti Pétur  Haha að detta ;] En annars er ég búin að ná verklega og hip og kúl á því bara og á leiðinni á landsmót í kvöld með Önnu, Ingva og Brautarholtsbræðrum á landroverkerru =D TILHLÖKKUNIN er gríðarleg!! ekki gleyma því að ég á afmæli á sunnudaginn börnin góð =D -Ragnheiður Halldórsdóttir
»
18.06.2008 00:06:45 / ragga
SÖP kryddstaukar =D
Mikið verið að seyði peyði hjá mér upp á síðkastið.. Crazy doing í vinnunni og ég var loksins í fríi í dag og verð á morgunn :]
Hmm... var e-ð að leika við Smára, Haffí, Steina og Sæma á laugardagskvöldið, hittum þá meðal annars Hannes sem var að veiða mink í SKÆRbleikum og SKÆRgrænum og fl. litum stuttbuxum ;] og ég óð eins og ÓÐ manneskja yfir ánna hjá Melsgili, jájájá helduru það sé kraftur í minni ;]
Svo á sunnudaginn rákum við féð í afréttina og gekk það bara nokkuð vel og ég var voða voða glöð að komast út í náttúruna á hestbak að smala í staðinn fyrir að hanga inni á hóteli og hreinsa hár uppúr niðurföllum, já drengur minn íslenska náttúran er fögur, guði sé lof og dýrð í upphæðum....
En toppur þessa mánaðar, hingað til, náðist í gær á Skítamórals balli í Sjallanum, shíí VENUR hvað ég skemmti mér vel =D Við stúlkurnar bulluðum bara lítið í einhverju fólki þarna og ætluðum að berja gaur sem ætlaði að berja Sindra og Anna datt niður stigann og ég veit ekki hvað og hvað.... En allavegana var þetta snilldar kvöld, langt síðan ég hef skemmt mér svona vel =D Var komin heim um 6 leytið og það var svo mikil blíða að mig langaði mest að draga bara einn lazboy-inn út á stétt og sofna í sólinni ... Rankaði svo við mér um hálf2 leytið eða e-ð og reif mig út í rokið að horfa á Steinku syss leika fjallkonu... Síðan drápu Gunni og Felix mig næstum úr hlátri .. hohoho
Annnars var ég bara að koma inn af rúntinum með Önnu pönnu þar sem við hittum Eyra og Bryndísi. Svo þegar ég var að hlaupa inn tókst mér einhvern veginn að fljúga á hausinn á stéttinni svo nú ligg ég hérna farlama og STÓRSLÖSUD og bíð eftir flugbjörgunnarsveitinni í Varmó ... fjúfff lífið er áhætta!!
En heyriði ég er farin að sofa og plana hvernig ísbjarnabúgarðurinn minn á að vera í framtíðinni
HILSEN -Ragga Gröndal
»
09.06.2008 10:22:16 / ragga
Jæææææææææææææææææja held það sé komin tími á vefsíðuritun 
Skrilljón billjón milljón uppákomur verið í mínu lífi síðan ég skrifaði hér síðast, sem ég man ekki einu sinni hvenær var ;] Allavegana var ball í Árgarði fyrir hmm.. svona 2 vikum, fínasta ball bara.. Anna & Gunna komu til mín að horfa á júróvisjón fyrir ballið og við kveiktum varðeld og svona ;] hann fór reyndar aðeins úr böndunum og varð ansi öflugur, en það slapp ;] ..síðan var maður bara á fullu heima þangað til 4. júní, sauðburðurinn að klárast og allir ligeglad og hressir.... Já svo fór ég í Ö2 í síðustu viku, svo nú fer bara að styttast í bóklega prófið og svo 27 dagar í að ég fái prófið VÚHÚ venur =D Byrjuð að vinna á Áningu og nóg að gera að koma hótelinu í stand, er að vinna með ágætis stúlkukindum svo mér leiðist ekki í vinnunni ;]
En núna er ég í fríi, ein heima á Grundó því heimilisfólkið er í Búlgaríu, held samt að þau séu komin til landsins núna =D
Hmm við Anna sötruðum aðeins á föstudagskvöldið, sem var reyndar mjög skemmtilegt =D Og endaði þannig að Anna vaknaði með dömubindi límt á löppina á sér .. HAHA góð saga sem ég segi ykkur kannski seinna ;] Og við hittum greyið hana Gunnu sem var voooða gaman =D
Fór heim í fyrradag að marka og ríja og förum í afréttina örugglega bara um helgina :] Hmm síðan fór ég nú í fínasta göngutúr með gerpinu henni Elínu í gær, skunduðum upp í Litla Skóg og ræddum heimsins mál =p
En nú þarf ég að drífa mig í bæjarferð og redda ýmsu fyrir þetta blessaða bílpróf, maður verður fátækur af þessum fjanda krakkar mínir!
SES lovers og það er dönsk stelpa á MSN sem heitir einmitt þetta : (L)Signe&Simon(L) - I love you to the moon and back(L) - I find my paradise, when you look in my eye(L)
CHILLUM á guiding light ástarvellunni, jakk!
EN já ses venner
-Ragga Gröndal
»
21.05.2008 17:34:03 / ragga
Halló, halló..... :]
Ekki verið mikið um blogg hér síðustu vikurnar þar sem það voru próf og er sauðburður :] Allavegana náði ég öllu nema stærðfr. ... :[ en ég vissi það nú alveg þar sem maðurinn í þröngu buxunum með risastóru útstæðu eyrun sem hann getur örugglega flogið á er ekki alveg besti kennarinn á landinu..........
En já annars er ég á fullu í sauðburði, eða hann er reyndar að klárast, svo ég hef nóg að gera og vaki á næturnar eins og ung snót í vindi með augu eins og hafið og hár eins og öldurnar... eins og Anna myndi orða það ;] Ég hef því ekki mikil samskipti við umheiminn þessa dagana og farin að jarma í staðinn fyrir að tala meeeeeeeeeeeeeeeeeeee ;]
Og já skólinn er búinn og ég er flutt frá Akureyri, allavegana þangað til næsta haust, frekar leiðinlegt að kveðja heimavistina :[ Við Simmi féllumst í faðma og það runnu nokkur tár..... Á eftir að sakna þess að sjá Signýju og Gunnu ekki á hverjum degi og leika við þær :[ Auðvitað á maður líka eftir að sakna Stínu Bú, vona bara að þetta grey verði duglegt að heimsækja mann í sumar í Fjörðinn 
EN minn kæri vinur, ball á laugardaginn í Árgarði og júróvisjón og svona, Ísland vinnur náttúrulega eins og venjulega ;] Hverjum langar að halda júrópartý fyrir ballið? =] Við Eyrún ætlum til Ak. að chilla niggash á föst =D Anna, Elín, viljiði koma með? Verðið samt að spyrja Eyrúnu um leyfi og vera stilltar :]
En komið gott í bili, man ekkert fleira sneddí að segja ykkur :]
HILSEN -GRÖNDAL
»
05.05.2008 17:55:25 / ragga
Hej mine kære venner =D
Sumarið er að koma og grundirnar að gróa svo ég nenni nú ekki baun að blogga...
En síðustu dagar hafa verið mjög skemmtó, undanförnum vikum hef ég þó mest megnist eytt með Sigguh Aadnegard sem fær fullt af knússum fyrir allt skemmtó Fórum heim í sauðburð á föstudaginn og gerðum ýmislegt af okkur, duttum alveg í bóndagírinn ;] Læt Signýju bara segja frá því í sínu bloggi ;]
Svo fór ég ud at spise med mine piger Eyrún & Anna á miðvikudaginn =D
EN svo var nú líka eytt stykki ball á laugardagskvöldið, þar ég skemmti mér afskaplega vel.......... spurjiði bara Ernu hún veit það betur ;p
En áðan náðum við Guðrún Elísabet toppnum á tilverunni og keyptum 300 vatnsblöðrur eða svo =D Slógumst svo aaaaaaaaaðeins, fórum t.d. inn til Gunnars sem lá sofandi í rúminu, kipptum af honum sænginni og þrusuðum í hann, SHíí það var fyndið, svipurinn á honum var náttúrulega óborganlegur!! Allavegana náðum við að rennbleyta allt og sjálfar okkur og Jakob, Ingva, Arnar og Aron og alla þessa vitleysingja sem reyndu að slást við okkur, svo komust þeir að því að við værum bara óviðráðanlegar  HITTAST fyrir utan Vistina í kvöld, the war is not over!!!
Annars er maður í blessuðum prófunum, íslenska í dag og svo stærðfr. fjandinn á miðvikudaginn URR!!
En hér koma nokkrar fagrar myndir, lékum okkur aðeins með einn smokk sem við settum fullt af vatni í ;p
 HAHAHA shit þetta er raunverulegt
 Smokkurinn góði var skemmtilegt leikfang svona fullur af vatni ;p
 Haha
 Múahaha hitti hana
 Kallinn í singstar hjá Eyrúnu ;p HILSEN -Raggz
»
22.04.2008 12:56:41 / ragga
Hvernig er hárið á þér núna? Skrilljón spennur og einn kambur í því Ertu feiminn? Já stundum Með hverjum fórstu seinast í bíó? Uuu Signýju, Hjalla, Gunnu & Sindra Á hvaða mynd fórstu? Step Up #2 Hverjum fórstu seinast með í kringluna? Lífsleiknihópnum mínum í VMA Hvað keyptiru? Ég man það ekki, ekki neitt held ég En Smáralind? Sama fólki Hvað keyptiru ? Ekki baun Hvaða manneskju kysstir þú seinast? Enga forvitni krakkar mínar  Er sá/sú eldri en þú ? Þú skalt bara rannsaka málið Hvað er seinasta áfengi sem þú drakkst? Rósavín? Hvernig líður þér? Ég er góð bara chillin' around e-ð Ertu í hreinskilni sagt ánægð/ur með líf þitt núna? Tjaa jájá Er eitthvað sem þú skilur ekki í fari hins kynsins? Jájá en annars á ég voða auðvelt með að skilja ;] Áttu kærasta/kærustu? NEI OJJ dónó spurning halló Hvenær ætlar þú að kyssa einhvern næst? Uuu svona um 17:54 þegar fjórir dagar eru af sumri Hvað kveikir í þér ? Allavegana ekki sú staðreynd að það sé einhver að hlaupa á þakinu fyrir ofan mig!! En slekkur? HÁR, mikið af HÁRUM Finnst þér rétt að daðra þó maður sé á föstu? Nei það býr bara til vesen!! Hvaða lag ertu að hlusta á ? Er á the booksafn you know Hvenær fórstu síðast í ljós ? síðasta miðvikudag minnir mig Hvenær ætlaru i ljós aftur? Er ekki mikið fyrir að plana Kemur þú vel fram við kærastann/una þína? Ég á ekki svoleiðis Hvernig gekk í skólanum í dag? Heyrðu fínt í ensku áðan allavegana  Berðu á þig brúnkukrem ? Ojjabara nei maður fær feita húð af því Hefur þú verið kallaður/kölluð Drusla? Já örugglega einhverntíman Ertu í makaleit? Tjaaaa ég auglýsi allavegana ekki á einkamal.is enn sem komið er Hvað er rúmið þitt stórt? Lítið  Hefur þú lent í ástarsorg? I have Klukkan hvað vaknaðir þú í morgun? hálf átta sprellvöknuð alveg klukkan hvað fórst þú að sofa? Svona ellefu hálftólf Stilltiru vekjaraklukku eða símann? Telefonen Ferðu í frí bráðum? Nei  eða ég losna úr skólanum en fer strax að vinna Ertu að hugsa um einhvern Hvort ég finni einhvern skemmtó í mötuneytinu Hvað gerðir þú í gær? Ég fór í ræktina og í bónusvideo og e-ð Hvenær dirty dansaðir þú seinast? Einhverju fyndnu partýi Hvenar hlóstu seinast? Í morgun þegar Jakob brandarakall kom í heimsókn Líkar þér við skemmtistaði? AFAR vel Ertu með dökka húð? White chick Hvað á að gera i dag? Er að fara í lífeðlisfr. og svo niðrá vist að chilla, fara svo í ræktina með Signýju og svo er aldrei að vita hvurn fjandann maður gjörir eftir það Í hverju ertu? Er ekki of snemmt að spyrja að þessu? Hvað er í kvöldmatinn? Æj ég man það ekki, eitthvert vistarsull
»
18.04.2008 15:52:08 / ragga
Jæja þá í þetta sinn, rinntinntinn rekt'ann út og INN =D
Neinei börnin góð í BLESSAÐRI BLÍÐUNNI sem hefur verið síðustu daga erum við úti Ekkert smá yndislegt veður síðustu þrjá daga, maður er búinn að stunda sundferðir og ískaup af kappi, kappi! Og kjellan er nú bara komin með bikínífar og ALLES jájájá elskan mín góða =D Annars er þessi vika búin að vera mjög, mjög skemmtileg og fljót að líða... Mest megnis búin að nýta mér skemmtilegheit Siggah niggah Aadnegard og bralla ýmislegt skemmtó  T.d. búnar að fara skrilljón ísferðir og í sund og í ræktina og gerðum líka myndband, e-ð verkefni sem Signý þurfti að skila. Frekar fyndið, þar sem ég lék einhverja gamla, bitra, háværa kellingu sem fylgir ekki reglum sjúkrahússins og Signý leikur sjúkraliða sem er e-ð að reyna að tala mig til.. Svo klippti Hjalli þetta allt til og þetta varð voða flott =D Og ekkert smá fyndið líka, við erum listamenn!!  Frk. Aadnegard En jáá núna sit ég bara og bíð eftir að Guðrún nokkur Elísabet verði búin að vinna svo við getum brunað í Fjörðinn og gengið hratt um gleðinnar dyr Jájájá fjandakornið JÁ ég má nú ekki gleyma að segja frá síðustu helgi, sem ég eyddi mest megnis heima í sveitinni með blessuðum skepnunum og auðvitað slatta af fólki líka... Sprautuðum allar rollurnar, gáfum ormalyf, merktum gemlingana og ég veit ekki hvað og hvað =D Og svo eru komin 2 lítil lömb, 1 folald, SÓLIN skín á himni hátt og lóan er komin að kveða burt snjóinn, elsku vinur það er að koma vor =D Já ég held það nú bara....  Á laugardagskvöldið fór ég svo í Hegranesið þar sem biðu mín 3 undurfagrar stúlkur og einn piltur og horfðum við saman með stolt í hjarta á Söngkeppni framhaldsskóla þar sem voru Skagfirðingar í þremur bestu atriðunum  Héldum söngfílingnum svo áfram og gauluðum í nokkra tíma í Singstar, ekki við mikla gleði þeirra sem hlustuðu ;]  Eyrún grey  Anna rauðhetta   HAHA Gunna ég vil MEIRA SVONA!!  Haha oo Elín ég sakna þessara tíma, gerum þetta aftur í sumar ;]  Og Biggi fær bílpróf á morgunn =D=D En ég er í svo miklum gleðiham að ég er að hugsa um að eyða tíma mínum í e-ð annað en að pikka á þetta tölvugrey HEJDO og við sjáumst bara í sundi eða að kaupa ís eða e-ð ;] -Ragnheiður Halldórsdóttir
»
10.04.2008 23:14:11 / ragga
Held það væri ráð að rita nokkur orð hér
Ýmislegt átt sér stað síðan ég bloggaði hérna síðast, t.d. mikið af manneskjum dáið og mikið af manneskjum fæðst .... Ótrúlegt að skoða www.mbl.is núna, mér finnst ég alltaf vera að lesa um fólk sem deyr af slysförum eða er að lenda í alverlegum bílslysum og rétt svo lifa af.. En svo les maður auðvitað líka umfæðingar, t.d. eitt stykki fimmburafæðingu, hvorki meira né minna! & líka þetta, ótrúlegt!!
,,Smábarn, sem fauk út á lestarteina í Sviss í veg fyrir aðvífandi lest, lifði af og fékk raunar aðeins kúlu á höfuðið, að sögn lögreglu í bænum Möhlin, skammt frá þýsku landamærunum. Barnið, sem er hálfs árs gamalt, sat í vagni við á lestarstöð þegar öflug vindhviða feykti vagninum út af brautarpallinum og á teinana í þann mund sem lest var að koma inn á stöðina. Að sögn talsmanns lögreglunnar fór lestin yfir barnið en það lenti á milli teinanna og sakaði ekki. Lestarstjórinn nauðhemlaði þegar hann sá barnavagninn renna fram af pallinum. Björgunarmenn heyrðu barnið gráta og fundu það heilt á húfi undir lestinni. Lítið var hins vegar eftir af vagninum. Bæði barnið og móðir þess voru flutt á sjúkrahús en móðirin fékk taugaáfall."
Pælum aðeins í heppninni góðan daginn!! En já talandi um að ganga með fimmbura, ég er búin að hugsa um þetta í allan dag, hvernig ætli þetta sé eiginlega? Hvernig ætli maginn á manni verði, bæði á meðgöngunni og tala nú ekki um eftir hana!! Við Gunna vorum að skoða myndir af konu sem gekk með þríbura um daginn og EKKI FALLEGT!
Og hérna er myndin ; http://theshapeofamother.com/Total%20belly%20time%20line.jpg
Ekki það að ég sé bara að hugsa á magann á gellunni, bara að eignast 5 börn í einu, þurfa að hugsa um 5 grátandi, pínulítil börn í einu, konur eru oft uppgefnar eftir 1 barn.. Hvað þá 5!!
JIIIII þetta unga fólk nú til dags......
En annars var þetta nú bara e-ð sem ég var að spá í ...
Allavegana.. fór ég til miðils þarsíðasta mánudags, eða spákonu og hún sagði mjög... ýmislegt =D Freaked me out, that woman! Vissi & sá alveg ótrúlega margt um mig og mína Sagði mér t.d. að blogga meira.....
Svo er maður nú líklegast búinn að vera hörkuduglegur í ræktinni =D ÖSSSHH kallinn sko, hlaðast vöðvarnir á okkur Signýju eins og enginn sé morgunndagurinn, við erum að verða svo helcut-aðar og massaðar í drasl að það er ekki venjulegt, VENUR! ;] Síðan er ég voða dugleg að horfa á One Tree Hill, shíí svaaaaaakaleg þáttaröð og þá hef ég líka nóg að tala um við Hrefnu í stærðfr. á þriðjudögum, Peyton & Lucas eru ment to be gott fólk, no doubt about it... jájá ég er orðin SVAKA klár í enskunni líka ;]
Það voru líka Opnir Dagar í skólanum í síðustu viku, ég, Gunnar, Signý, Hjalli, Guðrún Eyja, Hjálmar, Gunna, Rakel og einhverjir fleiri skelltum okkur t.d. í Gömlu Dansana. Sem var snilld reyndar, vorum samt aðallega að dansa einhverja þjóðdansa og hlaupa og hoppa í hringi eins og fífl ;]
Fór ekki heim síðasta föst. því ég var að fara í fermingu hérna á Ak. á laugardaginn, svo maður kíkti lidt í byen.. jájá sem endaði svona og hinsveginn! Svo var það já fermingin blessuð á laugardeginum þar sem maður hitti fullt af krúttlegum ættingjagreyjum & við pabbi fórum fyrst í kökuröðina með litlu börnunum =D
Obbobbobb þarna fékk ég SMS fráá bíddu nú við... Sjallanum, omg stalker.. en samt töff, verið að segja mér frá einhverjum mögnuðum afslætti sem maður fær ef maður er með "Söngkeppni armböndin" á Haffa Haff & Nýdönsk í ... Sjallanum =D ... Ég sem hélt þetta væri bara Biggi að segja mér enn einn brandarann um Hannes & Elísu ;]
Talandi um Bigga & Hannes ... og Elísu auðvitað, þá skellti ég mér smá heim í gær á síðustu KS-deildar keppnina & úrslitakvöldið í Reiðhöllinni, very gaman =D Kippti Önnu með mér þar sem Eyrún veit ekki hvaða dýr er með hófa ... & svo var auðvitað fullt af liði þarna í viðbót, snilld!
EN nú er þetta bara komið út í vitleysu hjá mér og ég ætla að drífa mig í bælið, SÖNGKEPPNI framhaldsskólanna hérna á Akureyri um helgina =D Svo þið kjósið bara annað hvort FNV, VMA eða KYNTRÖLL nr. 1, Húnvetnskir & Skagfirskir sveinar þar með í fararbroddi =]
OG FNV hefur unnið þrisvar!! .....let's do it again, shall we
SES lovers -Ragga Gröndal
»
02.04.2008 18:47:35 / ragga
1] Hver á hjartað þitt ? Ég döö 2] Hvernig vaknaðiru í morgun ? Síminn hringdi eins og mófóó 3] Hvort er rómantískara, sólarupprás eða sólsetur ? Sólsetur  4] Ertu búin að borða ávöxt í dag ? Hmm... njaaeiii örugglega ekki 5] Hvað gerðiru í gærkvöldi ? Ég hérna sko... chillaði bara og Jakob, Ingvi og Gunnar kíktu við og við í heimsókn 6] Hvaða manneskju knúsaðiru seinast? Snorra 7] Hvern af top friends listanum þínum myndiru deita ? Mmmm.. heh held það séu nú flest allt stelpur þar, annars gaurar á föstu eða frændur mínir  9] Hefuru verið í útvarpinu ? Haha já einhvern tíman í denn 10] Hvað drakkstu í dag ? Vatn, kristal og nesquick 11] Finnst þér hungang gott ? Ekki eintómt, en gott útí heitt kakó þegar maður er með hálsbólgu .. 12] Hvað er það seinasta sem þú braust ? Hmm.. örugglega kústskaft 15] Hefuru sungið í dag ? Jájájájá 16] Hvenær gréstu síðast ? Yfir One Tree Hill.. hihi 17] Hvað er nafnið þitt langt? Ragnheiður er 10 stafir allavegana  18] Hvenær fórstu seinast í sund ? Það er nú svoldið langt síðan bara 19] Elskarðu einhvern annan en fjölskylduna ? Já auðvitað, alla vini mína alveg í klesssu 21] Hvernig var dagurinn þinn ? Ágætur, allavegana enginn skóli 22] Er bolurinn þinn skítugur ? Tandurhreinn 23] Býrðu nálægt bestu vinum þinum ? Jámmz nokkrum þeirra á Ak.  24] Elskarðu Bon Jovi ? Neinei 25] Ertu hrædd/ur við snáka ? JÁ viðbjóðslegu dýr 26] Hvernig viltu steikurnar þínar eldaðar ? Bara almennilega steikt en ekki brunnið 27] Geturu spilað á gítar ? Byrjunina á Nothing else matters =D haha who doesn't 28] Hvernig gengurðu ? Bara eins og gamall bóndi eða e-ð 29] Hvað finnst þér um Fergie ? Fiiiine 31] Trúirðu á sanna ást ? Jájájá 32] Hefurðu séð Titanic ? Já 33] Lét hún þig gráta ? Jámmz 34] Hvaða sjónvarpsþátt horfðiru seinast á ? One Tree Hill 35] Finnst þér gaman að fótbolta ? Neii jiii 36] Hver er uppáhalds liturinn þinn ? Fjólublár og grænn  37] Hvert fórstu seinast í frí ? Hmm.. heim í helgarfrí  38] Hvað ætlaru að gera á morgun ? Ég ætla svo mikið sem að.. uu já ég er að fara á einhver námsskeið í skólanum og svo bara chilla niggash á Vistinni örugglega 39] Hvað varstu að gera fyrir 5 tímum ? Að horfa á Signýju í hipp hopp  40] Hvað finnst þér um fóstureyðingu ? Tjaaa.. mér finnst að hún eigi ekki að vera nema þessi þurfi nauðsynlega og aðstæðurnar séu mjög slæmar 41] Ertu í sokkum ? Jámmznegro 42] Í hverju ertu ? Nærfötum, sokkum, buxum, bol og peysu 43] Hvaða manneskju talaðiru seinast við ? Þórhildi 44] Hefurðu keypt þér einhver föt í síðastliðinni viku ? Uuuu.... nei 45] Hvað keyptirðu þér seinast á netinu ? Föt einhvern tíman fyrir löngu 46] Saknarðu einhvers ? Já  47] Skemmtirðu þér í dag ? Jáá í gömlu dönsunum =D 49] Hvar varstu um seinustu helgi ? Á Króknum 50] Hvað er það merkilegsta sem þú hefur gert í dag ? Dansað einhverja þjóðdansa 51] Ef þú gætir breytt um kyn einn dag, hvað myndiru gera ? Uu ég myndi... haha ég ætla ekki einu sinni að segja það
»
26.03.2008 14:31:23 / ragga
Ég held það sé kominn tími á að tjá sig aðeins hér :] Allavegana er páskafríið búið og fyrsti skóladagurinn eftir það... En þar sem það er langt, langt, langt síðan ég ritaði síðast e-ð að viti hér svo ég ætla að koma með nokkrar góðar sögur úr páskafríinu ... Byrjum samt sem áður á laugardagskvöldinu 8. mars minnir mig þar sem ég, Eyrún og Anna Lilja skelltum okkur í snilldar bústaðapartý í Varmahíð, þar sem flest okkar uppáhaldsfólk var saman komið. Vorum að vísu boðflennur en vissum það ekki fyrr en við komum á staðinn, eeen það er nú annað mál þar sem flestir allir aðrir voru það líka.. Ýmislegt skemmtilegt átti sér stað þetta kvöld, t.d. tókst mér að detta ofan í einhverja helvítis holu á pallinum þegar ég leit inn um klósettgluggann og sá frekar fyndna sjón, í hláturskasti og viss um að ég væri að stíga á pallinn tókst mér að stíga á ekki neitt svo ég flaug þarna ofan í með glæsibrag við mikinn fögnuð viðstaddra sem lágu allt í kringum mig og grétu úr hlátri... Ég græddi á þessu svona 7 fermetra dökkfjólubláan marblett á rassinn ;] Samt sem áður var þetta mjög sennilega skemmtiatriði kvöldsins því einhverra hluta vegna fannst öllum þetta voða fyndið ... Seinna meir kom svo í ljós að ekki aðeins rassinn á mér hafði beðið skaða við þessa dettu mína heldur líka blessaðar lagnirnar undir húsinu, þannig að þegar ég datt þarna í mínu mesta sakleysi vann ég víst e-ð svakalegt skemmdarverk og sprengdi nokkrar lagnir eða svo undir pallinum..... Ég bíð bara eftir reikningnum, en annars er náttúrulega stórhættulegt að hafa göt á pallinum á stærð við 16 tommu pizzukassa!!! .....svo er þetta náttúrulega allt Sæma að kenna ;] haha þeir fatta þetta sem hafa heyrt söguna alla ;] En páskafríinu eyddi ég nú mestmegnis heima í sveitinni að hugsa um bóndans fé og chillaði svona þess á milli :] EN þó sleppti maður alls ekki djamminu og við stöllur, ég, Anna & Eyrún héldum eitt stykki búningapartý í félagsheimilinu í Hegranesi og buðum vel völdu liði =D Við komumst að því að við erum snilldarpartý partý haldarar og þetta var SVAKALEGT stuð, Gunna fór t.d. á kostum í furðulegheitum og svo dönsuðum við eins og fífl langt fram á nótt og fleira =D =D =D Very skemmtilegt my friend ...   Siggi N1 dama og Anna rauðhetta   Andagarðafrænkurnar ;]   Haha Biggi var Pólverji    Hihi sætir djöflar   Haha glæsileikinn og varaliturinn að fara með okkur  OG ég veit ekki afhverju myndirnar komu tvisvar og ég næ bara alls ekki að eyða þeim!! Á laugardeginum dreif maður sig svo í eina ljúfenga fermingu og brunaði svo á ball á Blö. með Jóni & Haffí um kvöldið, fínasta, fínasta ball og við Elín snertum Magna =D OMGOMGOMGOMG og einhver stelpa reyndi að berja mig í burtu frá sviðinu því hún vildi eiga það EIN ... hihi allt að gerast eins og þið heyrið og sjáið gott fólk.... En þetta er komið gott í bili og best að finna sér e-ð gáfulegra að gjöra venur menn  Svo SES og ég þrái komment á þetta guðblessaða ritverk =D -Ragnheiður .......
»
14.03.2008 00:25:39 / ragga
Jájá ég veit alveg hvað þið eruð að hugsa rúllírú.... Perrastuðull (1-10): Haha ég get farið hátt svona í sérstökum fíling
Hvaðan ertu? Skagfirðingur skýr og hreinn, skáld og listamaður
Fjölskylda: Mamma(Mæja), pabbi(Halldór), Steini, Hjörvar, Steinunn og Jón
Hjúskaparstaða: Alveg í núlli!
Þú í 5 orðum: Kærulaus, utan við mig, fer mínar leiðir, þrjósk og brosandi
Ekki þú í 5 orðum: íþróttamaður, pempía, fýlupúki, listræn, skíðakappi? haha
Ilmvatn: Nota alltaf bara svona bodyspray 
Vinna: Heima í sveitinni þegar ég er þar
Fyrirmynd: Á eiginlega ekki svoleiðis
Mottó: Lifðu lífinu lifandi en þó skynsamlega =D
Tilgangur lífsins: Lifa því halló!
7 hlutir sem þú fílar: Djamm, vini, knús, tónlist, kúr, að fara á hestbak og matur!!
7 hlutir sem þú þolir ekki: Tillitsleysi, yfirgang, snobb, gellur sem kunna ekki að meika sig, kvart útaf engu, óheiðarleika og afbrýðissemi
Hvaða stjörnu líkist þú? Uu örugglega svipuð einhverri ljóskunni 
Ef þú hefðir einn yfirnáttúrulegan hæfileika, hvern myndirðu velja og af hverju? Að geta lífgað þá sem deyja fyrir aldur fram við..
Ef þú gæfir út breiðskífu, hvað myndi hún heita? Gröndal junior haha nei veit ekki
Myndirðu taka þátt í fegurðarsamkeppni? Haha nei ég myndi brjóta allt og bramla og fótbrjóta mig svo á skónum
Hvað keyptirðu þér síðast? Mars
Hver voru nýársheitin og hvernig gekk?? Uuu ég man það reyndar ekki, örugglega bara vera góð við fólkið sem ég elska eða e-ð
Safnarðu einhverju? fötum í hrúgu 7 hlutir sem þú þooolir ekki Hvað viltu að standi á legsteininu þínum? Hér hvílir Gröndal sem elskaði lífið og vertu svo ekki að grenja yfir legsteininum mínum! 
Hvað ættirðu að vera að gera núna? sofa
Hvað myndirðu láta börnin þín heita? Uuu veit það ekki alveg
Hver myndi leika þig í bíómynd? Einhver með nógu stóran rass 
»
12.03.2008 18:53:09 / ragga
Heyrðu gott fólk ég nenni ekki að blogga lengur, bloggaði sennilega yfir mig á yngri árum um ómerkilega hluti...
Ef ég þekki sjálfa mig rétt varir þetta bloggleysi samt alveg örugglega ekki lengi en allavegana á ég ekki eftir að nenna að blogga reglulega....
SES ....
-Ragnheiður
»
07.03.2008 20:08:21 / ragga
Tímarnir breytast og mennirnir með, ég nenni aldrei að blogga lengur ég sem bloggaði helst 5 sinnum á dag í denn! En margt á daga mína drifið... T.d. hélt Finnur uppp á afmælið sitt í Árgarði síðasta föstudagskvöld og VENUR það var gaman =D Maður var þarna á floti í stórskemmtilegu fólki, gæti tæplega orðið betra :] Enda eru komnar afar skemmtilegar myndir af þessum viðburði í "myndasöfn". Eftir blessað partýið kom maður sér á ball eftir skrautlega ferð á Krókinn ;] & ballið, ég varð nú reyndar fyrir vonbrigðum, þar sem ég man ekki betur en Páll Óskar hafi sungið svona 2 lög sjálfur og svo sást hann varla á sviðinu!! En partýið var snilld.... ;        Meget lykkelig SVO á sunnudaginn lá leið mín í Borgina með bekknum mínum, helstu nörd VMA saman komin  & í Borginni vorum við alveg fram á þriðjudag og skoðuðum hina ýmsu skóla og skruppum líka í keilu og svona =D Þar sem Hulda sýndi listir sínar og kastaði kúlunni t.d. tvisvar uppí loftið þegar hún átti að fara í keilurnar með þeim afleiðingum að hún lenti á brautinni við hliðina á og gerði fellu fyrir gauranna í þeirri braut :'D FYNDIÐ! Svo hitti ég líka minn bróður og hans yndislega krúttlegu litlu fjölskyldu :] Maður var ekki fyrr kominn heim áður en maður dreif sig e-ð aftur því á miðvikudeginum tókum ég, Gunna og Lína þá skyndiákvörðun að bruna í Fjörðinn í tilefni afmælisdags Elínar =D Komum henni og Eyrúnu líka heldur betur á óvart sem var frekar gaman, þær felldu gleðitár og alles þegar þær sáu okkur  ..fjúff tilfinningaþrungin stund!! ;] Svo hefur maður bara e-ð verið að dunda sér í skólanum, skila ritgerðum og taka próf og hitt og þetta :] Fengum líka miðannamat í síðustu viku sem kom ljómandi vel út hjá mér =D Spurning samt hvað maður geri næsta haust, hvort maður haldi áfram í VMA, fari suður í FÁ, fari í FNV eða bara skelli sér til Spánar og verði þar í 3 mánuði eða svo að læra spænsku =D Maður á að nýta ungu árin til ævintýranna börnin góð, það segir amma mín allavegana ;] En nú er ég búin að tuða nóg í bili, ætla að skella mér í sturtu og kíkka svo lidt i byen HEJDO ven =D -Ragga Gröndal í OFSAstuði!!
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|
Talning
Fyrir 1314 dögum
..fæ ég bílpróf!!!
|